Ráðstefna: Nútímalausnir í byggingariðnaði

Ráðstefna fyrir fagaðila í byggingariðnaði með áherslu á kambstál

Neðst í umfjölluninni er hlekkur á alla fyrirlestrana.

Ráðstefnan sem var haldin 4. okt. 2023 var einstaklega vel heppnuð, frábær mæting og mikið af fyrirspurnum til fyrirlesara yfir veitingum eftir ráðstefnuna.

Ráðstefnan fjallaði um nýjar áherslur í járnabindingum og þær fjölmörgu lausnir við notkun á kambstáli sem eru í boði hér á Íslandi.
 
Sjö fyrirlesarar héldu erindi

Farið var yfir stöðu járnabindinga hér og erlendis ásamt framtíðarhorfum. Erindi  voru flutt um framfarir í vinnslu á kambstáli og breytingar sem eiga sér stað í hönnun með BIM.

Sagt var frá því hvernig forvinnsla á kambstáli með tölvustýrðum vélum opni nýja möguleika á betri vinnubrögðum, einfaldi aðstæðum á byggingastað, stytti verktíma og sé umhverfisvænni þar sem minni afgangar verði á kambstálinu.

Einnig voru sagðar reynslusögur þar sem t.d. var farið yfir nýtt knattspyrnuhús Hauka í Hafnarfirði.

Kambstál_ráðstefna_nútímalausnir_í_byggingariðnaði
Mjög góð mæting var á ráðstefnuna en vel yfir eitthundrað gestir mættu.

Yfir eitthundrað mættu frá verktakafyrirtækjum, verkfræðistofum og öðrum aðilum tengdum byggingariðnaði.
Í lok ráðstefnunnar var boðið upp á veitingar og fyrirlesarar buðu upp á spjall og svöruðu spurningum fundargesta.
 
Eftirtaldir fyrirlestrar voru á ráðstefnunni sem Kambstál ehf stóð fyrir:

  • Árni B. Halldórsson og Einar E. Halldórsson frá Kambstál ehf – Þróun í vinnslu kambstáls á Íslandi
  • Björn von Bresinski, Duca Systems AG – “ZENTOR – Digital Controlled Rebar Splice”
  • Þorgeir Margeirsson,  Schöck Bauteile Gmbh – “Komum í veg fyrir myglu með Schöck Isokorb”
  • Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, Ístak – Stafræn járnbending
  • Marcin Ciesielski og Sirikit Balslev, Building Point Scandinavia – Notkun Tekla við hönnun á járnbendingu
  • Valur Hreggviðsson, ÍAV – Reynslusaga – Knattspyrnuhús Hauka

Hér yfir neðan eru hlekkur á alla fyrirlesarana:

BirgirBirgir Örn Friðjónsson frá Kambstál ehf
• Inngangur og um ráðstefnuna.

 

Árni B. Halldórsson frá Kambstál ehf
• Þróun í vinnslu kambstáls á Íslandi.

 

Einar Einar E. Halldórsson  frá Kambstál ehf
• Þróun í vinnslu kambstáls á Íslandi með áherslu á samsetningar.

 

Björn von Bresinski frá Duca Systems AG
• ZENTOR – Digital Controlled Rebar Splice.

 

Þorgeir Margeirsson frá Schöck Bauteile Gmbh
° Komum í veg fyrir myglu með Schöck Isokorb.
.
.
Ingibjörg Birna Kjartansdóttir frá Ístak
• Stafræn járnbending.
.
.
Marcin Ciesielski og Sirikit Balslev frá Building Point Scandinavia  • Notkun Tekla við hönnun á járnbendingu.
.
.
Valur Hreggviðsson frá ÍAV
• Reynslusaga – Knattspyrnuhús Hauka.

 

 Ráðstefnan í heild sinni