Hrafn Guðlaugsson sigurvegari í leik okkar á Verk og vit

Hrafn Guðlaugsson sigurvegari í leiknum okkar á Verk og vit sýningunni

Hrafn kom til okkar á dögunum og sótti vinninginn sem mun nýtast vel í sumar

Á myndinni hér að ofan er frá vinstri: Hrafn Guðlaugsson vinningshafi og Birgir Örn Friðjónsson, framkvæmdastjóri Kambstáls.

Hrafn vann forláta garðhúsgögn, borð og stóla, sem voru hönnuð og smíðuð af starfsmönnum Kambstáls, og að auki fékk Hrafn Kambstálsbjór sem þeir Birgir sjást hér skála í.

Leikurinn gekk út á að giska á hve þung ein af kambstáls einingunum á sýningunni var (sjá mynd hér að neðan).

Hér er kambstálseiningin sem leikurinn snérist um, hún var hönnuð og smíðuð í Kambstál ehf og vóg 285 kg.

Mjög mikil þátttaka var í leiknum og svörin voru fjölbreytt þau allt frá nokkrum kílóum upp í yfir 10 tonn. Rétt svar er 285 kg og var Hrafn sigurvegarinn ansi nálægt því eða 285,1 kg.

Fyrsti vinningur: Borð og tveir stólar.

Annar vinningur: Tveir stólar.

Nokkrir giskuðu á 286 kg og var dregið á milli þeirra um annað sætið.

Í vinning voru sérsmíðuð útihúsgögn sem voru hönnuð og smíðuð hjá okkur í Kambstál.

  1. vinningur – tveir stólar og borð hlaut, Hrafn Guðlaugsson, 285,1 kg.
  2. vinningur – tveir stólar, hlaut Ásgeir Stefánsson, 286 kg.

Við óskum sigurvegurunum til hamingju með vinninginn og þökkum öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í leiknum.

Back to blog