Samsetningardeild
Samsetningar eftir þínum óskum
Kambstál hefur boðið upp á samsetningu frá árinu 2021. Deildin hefur stækkað jafnt og þétt og telur núna fimm starfsmenn.
Starfsmenn hjá Kambstáli geta leiðbeint og metið hvort og þá hvernig hægt er að flýta fyrir járnavinnu með því að fá samsettar járnagrindur á verkstað. Það getur sparað mikinn tíma og mannskap við framkvæmdina. Það hentar sérstaklega vel í undirstöður fyrir stál- og trégrindarhús þar sem er þá jafnvel hægt að sleppa alveg að koma upp aðstöðu fyrir járnabindingu.

Verkefni
Í gegnum tíðina hefur samsetningardeild Kambstáls skilað mjög fjölbreyttum vörum, allt frá einföldum bitum og járnamottum til flókinna undirstaðna. Samsettar einingar eru almennt rafsoðnar saman og þola þá vel flutning og geymslu.
Í öllum verkefnum er alltaf lögð mikil áhersla á nákvæmni í vinnubrögðum og að vöru sé skilað á tilskildum tíma.




