Tæknideild

Starfsmenn deildarinnar eru með breiða og yfirgripsmikla þekkingu á járnabindingum og mannvirkjagerð almennt.
Menntun og reynsla starfsmanna spannar áratugi bæði við hönnun, eftirlit og framkvæmdir á verkstað. Starfsmenn deildarinnar geta því gefið bæði hönnuðum og verktökum góð ráð sem geta einfaldað framkvæmd verka.

Verkefni
Tæknimenn Kambstáls vinna járnalista upp úr teikningum, þar sem hvert járn hefur sitt númer, og merkt staðsetningu þeirra inn á teikningar.
Tæknideild Kambstáls býður verktökum upp á að rýna teikningar til að sjá fyrir vandamál sem geta komið upp á framkvæmdatíma og leysa þau strax svo ekki komi til óþarfa tafa. Vandamál sem geta verið auðleyst ef þau uppgötvast tímanlega en orðið mjög dýr eftir að framkvæmdir eru hafnar.
Til þess er t.d. notast við Tekla forritið, en þá er járnabinding teiknuð upp í þrívídd og hún rýnd og árekstraprófuð í forritinu.


