Um Kambstál ehf

Kambstál ehf er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu steypustyrktarstáls á Íslandi. Stálið afhendist, hvort sem er, klippt og beygt eftir máli til samsetningar á verkstað eða í samsettum járnagrindum tilbúnum í steypumótin.

Kambstálið er klippt og beygt í fullkomnum tölvustýrðum vélum og samsetning fer fram innandyra í sérhönnuðu húsnæði. Kambstál selur allar vörur til járnabindinga svo sem fjarlægðarplöst, bindivír, járnabakka og járnamottur. Mikið úrval er til á lager en einnig er boðið upp á sérpantanir.

Kambstál var stofnað árið 2018 og byrjaði með tvær tölvustýrðar vélar við Íshellu í Hafnarfirði. Fljótlega varð húsnæðið of lítið og ráðist var í að byggja yfir starfsemina árið 2023.

Í ársbyrjun 2025 var flutt í nýtt 3.600 m2 húsnæði að Tinhellu 3 í Hafnarfirði. Samhliða því var bætt við tækjakostinn. Að jafnaði starfa um tuttugu og fimm manns hjá Kambstáli.

Fyrirtækið hefur nú yfir að ráða sjö sjálfvirkum vélum sem klippa og beygja kambstál auk nokkurra minni til framleiðslu skrúfteina, völsunar og sérhæfðra beyginga. Unnið er úr 8-40 mm sveru kambstáli bæði af rúllum og úr beinum stöngum.

Tæknideild Kambstáls tekur við gögnum úr helstu hönnunarforritum og gerir þau klár fyrir framleiðslu. Boðið er upp á rýni gagna til að koma í veg fyrir hugsanleg vandamál við niðurlagningu s.s. vegna árekstra járna. Einnig veita starfsmenn ráðgjöf varðandi allt sem kemur að framkvæmd járnalagnar.

Samsetning hefur aukist mikið síðustu ár og er sá hluti starfseminnar sem stækkar hraðast. Samsetning fer fram við góðar aðstæður innandyra. Allar járnagrindur eru rafsoðnar saman nema beðið sé um annað. Það tryggir að þær haldi lögun sinni við flutning og geymslu.  Við samsetninguna starfa reyndir starfsmenn sem skilar sér í vönduðum járnagrindum.

Fyrirtækið býr yfir miklum mannauði og allir lykilstarfsmenn eru með góða menntun og búa yfir langri reynslu úr byggingariðnaði.