Kambstál er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026

Kambstál er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026

Kambstál ehf hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 hjá Keldunni og Viðskiptablaðinu.

Við erum stolt af því að vera í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri annað árið í röð og þakklát fyrir þessa viðurkenningu sem er staðfesting á traustum rekstri og mikilvægu framlagi okkar frábæra starfsfólks.

Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng fjárhagsleg viðmið og sýna fram á jákvæða afkomu, tekjur, eignir og eiginfjárhlutfall. Hún endurspeglar þannig stöðugleika og góðan árangur í rekstri.

Helstu skilyrði til að komast á listann:
• Rekstrarárin 2025 og 2024 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2023.
• Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
• Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
• Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
• Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
• Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.
Back to blog