Mikil þátttaka í leik okkar á Verk og vit sýningunni

Mikil þátttaka í leik okkar á Verk og vit sýningunni

Það var gríðarlega góð þátttaka í leiknum okkar á Verk og vit sýningunni í Laugardalshöll 19.-22. mars 2026.

Leikurinn snérist um að giska á hversu þung ein af kambstálseiningunum á sýningunni er, sjá mynd hér að neðan.

Hér er kambstálseiningin sem leikurinn snérist um, hún var hönnuð og smíðuð í Kambstál ehf og vóg 285 kg.

Mjög fjölbreytt svör komu og voru þau allt frá nokkrum kílóum upp í yfir 10 tonn. Rétt svar er 285 kg og var sigurvegarinn ansi nálægt því eða 285,1 kg.

Fyrsti vinningur: Borð og tveir stólar.

Annar vinningur: Tveir stólar.

Nokkrir giskuðu á 286 kg og var dregið á milli þeirra um annað sætið.

Í vinning voru sérsmíðuð útihúsgögn sem voru hönnuð og smíðuð hjá okkur í Kambstál.

  1. vinningur – tveir stólar og borð hlaut, Hrafn Guðlaugsson, 285,1 kg.
  2. vinningur – tveir stólar, hlaut Ásgeir Stefánsson, 286 kg.

Búið er að láta vinningshafa vita.

Við óskum sigurvegurunum til hamingju með vinninginn og þökkum öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í leiknum.

Back to blog