Takk fyrir okkur á Verk og vit 2026

Takk fyrir okkur á Verk og vit 2026

Glæsilegur bás á Verk og vit sýningunni í Laugardalshöll 19.-22. mars 2026


Þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem heimsóttu okkur á bás B5 þar sem við kynntum starfsemi okkar og hvernig við getum einfaldað þér vinnuna!

Megin starfsemi okkar er að þjónusta byggingariðnaðinn með vinnslu á kambstáli. Við beygjum, klippum og setjum saman einginar, allt innandyra við bestu aðstæður og með fullkomnum tölvustýrðum vélakosti. 
Erum einnig með mikið úrval af fylgihlutum til járnabindingar bæði á lager og í sérpöntun.

Fjölmenni á Kambstáls básnum á Verk og vit 2026
Fjölmenni var á básnum okkar alla sýningardagana.

Nýjungar

Mikla athygli vöktu nýjungar okkar á sýningunni. Unidome kynnir algjöra nýjung á Íslandi fyrir staðsteyptar plötur og forsteyptar kúluplötur. Einnig kynntum við tilbúin sökkulmót sem henta við ýmsar aðstæður.

.
Með okkur á básnum voru samstarfsaðilar okkar, frá vinstri: Dr. Karsten frá Unidome, Árni frá Schöck, Björn frá Duca Systems og Mathias frá Eurospacers.

Erlendir samstarfsaðilar

Samstarfsaðilar Kambstáls á Verk og vit voru frá fjórum fyrirtækjum.
BJÖRN VON BRESINSKI er frá Duca Systems.
MATHIAS OLAUSSON er frá Eurospacers.
DR. KARSTEN PFEFFER frá Unidome.

Einnig voru þeir ÞORGEIR MARGEIRSSON og ÁRNI KRISTJÁNSSON frá Schöck.

Verk og vit var virkilega góð sýning í ár og við hlökkum til að sjá ykkur á næstu sýningu í Laugardalshöll 2028.
.
Hér fyrir neðan sjáum við nokkrar myndir og myndband frá sýningunni.



.
.
Hér sjáum við bakhliðina á básnum en hann var allur baklýstur.

Birgir Friðjónsson framkvæmdastjóri Kambstáls, Dr. Karsten Pfeffer stofnandi Unidome og Árni Halldórsson sölustjóri Kambstálas.
Stólar og borð vöru hönnuð og sérsmíðuð af starfsmönnum Kamstáls fyrir sýninguna. Einnig voru þau verðlaun í leik sem við vorum með á sýningunni.
Tilbúin sökkulmót eru nýjung á Íslandi.
Zentor skrúfutengin / Couplers frá Duca Systems eru bráðsnjöll.

Nýjung frá Unidome.
Schöck standurinn sem sýndi sýnishorn sem eyða kuldabrúm.
Eurospacers hornið á sýningunni sem sýnir m.a. Speedies.
Back to blog