Sjáumst á Verk og vit ráðstefnunni 2026

Kambstál á Verk og vit 2026

Kambstál verður með stóran bás á Verk og vit ráðstefnunni sem verður haldin 19.-22. mars 2026 í Laugardalshöll.

Þar munum við sýna hvað við höfum uppá að bjóða fyrir byggingaiðnaðinn. Við klippum og beygjum kambstál í tölvustýrðum vélum og bjóðum uppá samsetningarþjónustu. Við bjóðum uppá mikið úrval af fylgihlutum beint af leger og svo erum við líka með sérpöntun frá birgjum okkar.

Einnig kynnum við nýjungar á Íslandi eins og vörur frá Unidome og svo sökkulmót ásamt fleiru.

Starfsmenn birgja okkar verða á básnum og kynna sínar vörur.

Allir geta tekið þáttt í skemmtilegum leik þar sem gilska á hversu þung ein kambstáls einingin er sem verður á básnum.

Hlökkum til að sjá ykkur á bás B5, sem er nánast beint við innganginn.

Meðfylgjandi myndir eru af starfsmönnum okkar við smíðina á básnum.

Kambstál Verk og vit 2026 samsetning
Kambstál Verk og vit 2026 samsetning
Kambstál stólar og borð
Back to blog